Skip to content

vefforritun/vef2-2026-einstaklings

Folders and files

NameName
Last commit message
Last commit date

Latest commit

 

History

2 Commits
 
 

Repository files navigation

Vefforritun 2, 2026, einstaklingsverkefni

Lýsing

Verkefnið er þríþætt:

  1. Fyrri skil þar sem verkefnið er skilgreint, verkplan útbúið og matskvarði skilgreindur. Gildir 5% af lokaeinkunn.
  2. Full skil á verkefni og skýrsla sem þið vinnið sjálf. Gildir 10% af lokaeinkunn.
  3. Kynning á verkefni. Gildir 10% af lokaeinkunn.

Verkefni

Verkefnið er unnið kringum valið efni og er í formi forrits eða viðmóts sem unnið er frá grunni.

Skilyrði er að verkefnið nýti að minnsta kosti tvennt af eftirfarandi:

  • Bakendi útfærður.
  • Vefþjónusta (REST eða GraphQL) útfærð.
  • Framendi útfærður (með template máli eða framenda framework).
  • Flóknari framendi útfærður (t.d. nýleg virkni í CSS eða flókin kvikun)
  • Einhvers konar próf skrifuð sem skipta máli.
  • Notendaumsjón útfærð.
  • Gagnagrunnur (SQL eða NoSQL) notaður.
  • Hönnunarskjöl útfærð (Figma, UML rit eða álíka) og kynnt í skýrslu.
  • Greining á verkefni unnin fyrir fram t.d. ef verkefnið er stærra en það sem formast innan þessa verkefnis (t.d. tímalínur og niðurbrot á verkþáttum) og kynnt í skýrslu.
  • Verkefni sem notar annað umhverfi en Node.js.
  • Verkefni sett upp í hýsingu með CI/CD ferlum (continuous integration, continuous deployment).
  • Eitthvað annað sem ykkur dettur í hug og tengist vefforritun á einhvern hátt.

Það skal klára verkefnið á einhvern hátt, t.d. er komin útfærsla sem er keyrandi og hægt að heimsækja á vefnum; eða búið er að klára greiningu að einhverju leyti og skilgreina næstu skref.

Skýrsla

Skýrslan er skjölun á því hvað var gert og hvernig það gekk; hvernig viðfangsefni tengjast vefforritun; hvaða skilyrði voru valin og hvernig þau voru uppfyllt.

Form skýrslu skal annaðhvort vera Markdown skjöl í repo (readme.md og hugsanlega fleiri skrár) eða sem PDF skjal. Í skýrslu skal taka fram (þetta gætu verið kaflaheiti):

  • Inngangur, hvaðan kom hugmyndin.
  • Útfærsla, hvaða skilyrði eru uppfyllt og af hverju.
  • Tækni, hvaða tækni er notuð og af hverju.
  • Hvað gekk vel.
  • Hvað gekk illa.
  • Hvað var áhugavert.

Ekki er krafa um ákveðinn blaðsíðufjölda en skýrslan skal uppfylla það sem ætlast er til á skýran hátt.

Skrifa má skýrsluna á íslensku eða ensku.

Fyrri skil

Skila skal:

  • Hvaða skilyrði verði útfærð og hvaða efnistök.
  • Verkplani.
  • Matskvarði fyrir verkefnið.

Mælt er með að skilgreina frekar minna verkefni og eitthvað sem er ekki gert í öðrum verkefnum. T.d. er of mikið að ætla að gera vef sem útfærir vefþjónustur, notendaumsjón og einhverja áhugaverða virkni. Það væri betra að einbeita sér að því að gera áhugaverða virkni og koma henni í hýsingu, hópverkefni 1 sér um vefþjónustur og notendaumsjón.

Verkplan skal taka fram hvenær og hvernig verkefnið verður unnið í vikum 6.–15. T.d. gæti verkplan tiltekið:

  • Í hvaða vikum verður verkefnið helst unnið. Takið tillit til annarra námskeiða og skipuleggið.
  • Hvaða hlutar verkefnis gætu verið flóknari en aðrir.
  • Hvenær farið verði í að setja verkefnið upp í hýsingu.
  • Hvenær skýrsla verður skrifuð.

Fyrir matskvarða skal nemandi skilgreina hvernig verkefnið verður dæmt að hluta í lokin. Það er tengt við bæði efnistök og plan, t.d.:

  • Ef verkefnið snýst um að skrifa REST API fyrir virkni foo og bar með prófum, sett upp í hýsingu:
    • 20% Útfærsla á foo sem les gögn.
    • 20% Útfærsla á bar sem les og leyfir að breyta, eyða og eyða gögnum.
    • 20% Einingaprófanir á foo og bar.
    • 20% Samþættingarprófanir (integration test) á foo og bar.
    • 20% Vefþjónusta sett upp í hýsingu.
  • Ef verkefnið snýst um að rannsaka Deno sem forritunarumhverfi, byggja vef (framenda og bakenda) og setja það upp í hýsingu:
    • 40% Rannsókn á Deno sem forritunarumhverfi og lýsing á því í skýrslu með efni áfangans til samanburðar.
    • 30% Uppsetning á bakenda og framenda.
    • 30% Uppsetning á verkefni í hýsingu.
  • Ef verkefnið snýst um að nota Figma til að útbúa hönnun á vef, setja upp framenda með nýlegri CSS virkni og nota Framer kvikunarforritasafnið til að setja upp kvikun:
    • 30% Hönnun á vef í Figma.
    • 40% Útfærsla á vef með nýlegri CSS virkni.
    • 30% Útfæra kvikun með Framer.

Kynning

Kynning fer fram í mánudags- eða miðvikudagstímum í vikum 13 og 14 (6., 8., 13. og 15. apríl) fyrir framan kennara og aðra nemendur. Kynning fer yfir það sem kemur fram í skýrslu og sýnir dæmi úr verkefni.

Lengd skal vera um 10 mínútur, hámark 15 mínútur.

Eftir kynningu þarf að svara óundirbúnum spurningum frá kennara.

Hugmyndir um efnistök

Verkefnið er viljandi opið, þið megið gera hérumbil hvað sem er svo lengi sem það hefur einhverja tengingu við vefforritun (þarf ekki einu sinni að vera tengt við neitt sem við gerum í vor!)

Til dæmis:

  • Vefforritun í öðru forritunarmáli/forritunarumhverfi, t.d. Ruby on Rails, .NET, PHP.
  • Önnur framendaframework, t.d. Svelte, Vue.
  • Önnur „meta“ framework, t.d. SvelteKit, Nuxt.
  • Notkun á öðrum gagnagrunnum, SQL eða NoSQL, t.d. MySQL, SQLite, MongoDB.
  • App útfærsla með t.d. React Native eða Flutter.
  • Desktop útfærsla með t.d. Electron eða Tauri.
  • Notkun á kvikun gegnum library, t.d. GSAP eða Motion.
  • Útfærsla á verkefni með Web Components.
  • Notkun á „local first“ útfærslum.
  • Önnur hýsing, t.d. Cloudflare, AWS eða Google Cloud.
  • Útfærsla á verkefni í formi vefforrits:
    • Einhver „viðskiptahugmynd“, getur verið í formi „proof of concept“.
    • Þinn eigin vefur/blog.
    • Vefur um efni/áhugamál.

Sett fyrir

Verkefnið sett fyrir í fyrirlestri miðvikudaginn 21. janúar 2026.

Skil

Fyrri skil eru í seinasta lagi fimmtudaginn 19. febrúar 2026.

Skil á fullkláruðu verkefni í seinasta lagi miðvikudaginn 22. apríl 2026.

Skil skulu innihalda:

  • Slóð á verkefni keyrandi á hýsingu, ef við á.
  • Slóð á GitHub repo fyrir verkefni, bjóða skal osk í repo.
  • Skýrsla.

Skil á kynningu

Skila skal kynningu á Canvas í seinasta lagi daginn fyrir kynningu. Kynningar fara fram í fyrirlestrartímum:

  • mánudaginn 6. apríl 2026.
  • miðvikudaginn 8. apríl 2026.
  • mánudaginn 13. apríl 2026.
  • miðvikudaginn 15. apríl 2026.

Skipt verður af handahófi í kynningar, meira um það nánar.

Mat

  • Fyrri skil
    • 30% Hvaða skilyrði verði útfærð og hvaða efnistök.
    • 30% Verkplan.
    • 40% Matskvarði fyrir verkefnið.
  • Verkefni og skýrsla:
    • 30% Efnistök og tenging við vefforritun, útfærsla og skilyrði uppfyllt.
    • 30% Skýrsla.
    • 40% Mat á verkefni samkvæmt matskvarða nemenda.
  • Kynning
    • 10% Kynning virðir tímamörk.
    • 20% Uppsetning, glærur, forritunardæmi.
    • 40% Kynningin skýr og auðvelt að fylgja eftir.
    • 30% Svör við óundirbúnum spurningum.

Sleppa minni verkefnum fyrir stærra einstaklingsverkefni

Ef áhugi er fyrir því er hægt að sleppa því að skila einu minna verkefni fyrir stærra einstaklingsverkefni. Almenna reglan er að við það sé einstaklingsverkefnið tvisvar sinnum stærra. Þetta er samt erfitt að meta. Til að nýta þennan möguleika þarf að hafa samband við kennara, skilgreina hvað verði gert aukalega (hægt er að miða við endurgjöf úr fyrri skilum) og fá leyfi frá kennara.


Útgáfa 0.1

Útgáfa Breyting
0.1 Fyrsta útgáfa

About

No description, website, or topics provided.

Resources

Stars

Watchers

Forks

Releases

No releases published

Packages

 
 
 

Contributors